NEW EVENT
Eyþór Ingi – Einn á flakki (Hofsós)
19/06/2026 21:00
Höfðaborg, Skólagata, 565 Hofsós
Í sumar leggur Eyþór Ingi land undir fót og kemur fram einn á flakki, vopnaður gítar, píanó og sínum einstaka húmor.
Gestir fá að njóta notalegrar kvöldstundar þar sem hann flytur blöndu af sínum uppáhalds lögum, eigin tónlist, sögum og skemmtilegum uppákomum eins og honum einum er lagið.
Einn af viðkomustöðum þetta sumarið er Bæjarhátíðin Hofsós heim. Viðburðurinn fer fram í Höfðaborg og hefjast tónleikarnir kl. 21:00.
📍 Hofsós – Bæjarhátíðin Hofsós heim
📌 Höfðaborg
🕘 19. júní kl. 21:00
Takmarkaður fjöldi miða – tryggðu þér sæti tímanlega!