Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
Karlakór Kjalnesinga – 35 ára afmælistónleikar

Karlakór Kjalnesinga – 35 ára afmælistónleikar

24/10/2026 16:00
Langholtskirkja, Sólheimar 13, 104 Reykjavík

Karlakór Kjalnesinga fagnar 35 ára afmæli með glæsilegum tónleikum í Langholtskirkju!

Karlakór Kjalnesinga hefur starfað samfellt frá árinu 1991 og í dag telur kórinn um 70 virka söngmenn. Afmælinu verður fagnað með fjölbreyttri og skemmtilegri efnisskrá þar sem einkunnarorð kórsins, „Metnaðarfullur léttleiki“, verða höfð að leiðarljósi.

Á tónleikunum verður stiklað á stóru í lögum sem kórinn hefur flutt í gegnum tíðina, auk þess sem nýrri verk af efnisskrá kórsins fá að hljóma.

Sérstakir afmælisgestir verða Karlakór Dalvíkur og Karlakór Hveragerðis, sem einnig koma fram. Það má því búast við sannkallaðri söngveislu þar sem þrír öflugir karlakórar sameinast á einum stað.

Stjórnendur kóranna eru Lára Hrönn Pétursdóttir, kórstjóri Karlakórs Kjalnesinga, Þórður Sigurðarson, kórstjóri Karlakórs Dalvíkur, og Örlygur Atli Guðmundsson, kórstjóri Karlakórs Hveragerðis.

Húsið opnar kl. 15:30 og tónleikarnir hefjast kl. 16:00.

Komdu og fagnaðu 35 ára sögu Karlakórs Kjalnesinga með okkur á eftirminnilegri söngveislu!