Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

Sál á Kex - Laville, Taloula, Anya Shaddock ásamt Ash Walker (Dj-set)

Sál á Kex - Laville, Taloula, Anya Shaddock ásamt Ash Walker (Dj-set)

07/01/2024 19:00
Reykjavík, Iceland, 101, Skúlagata 28

Sunnudaginn 7. janúar nk. verður mikil sálarveisla!
Breski sálarsöngvarinn Laville hefur komið til Íslands áður í samfylgd hljómsveitar Ash Walkers en núna mun hann spila með bandinu sínu á Íslandi í fyrsta skiptið. Nýverið hefur Laville verið að taka þátt í Breska Voice þar sem hann er í liði Will.i.am og eru tvær plötur að fara að koma út með honum 2024.

Taloula er sjálfstæð r&b/sálarsöngkona sem kemur upprunalega frá Frakklandi þar sem hún gerði popptónlist undir nafninu Tal undir Warner Brothers France. Síðan 2019 hefur hún búið í Bretlandi og einbeitt sér að sinni eigin tónlist og gaf hún út sína fyrstu plötu í lok 2023 sem bar nafnið "The evolution of Taloula part 2" og verða þetta fyrstu tónleikar hennar fyrir utan Bretland eftir útgáfu plötunnar. 

Anya Shaddock er rísandi lagasmiður á Íslandi sem hefur verið að gefa út frábæra tónlist á eigin vegum frá 2022. Nýverið kom út singull "með vona um nýjan dag" sem hún gaf út með d.irb sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
 Ash Walker er breskur plötusnúður og próducer sem hefur verið að gera góða á labelinu LateNightTales þar sem hann gaf út nýjustu plötunu sína “Astronaut” (2023). Ash Walker mun sjá um að spila góða tóna milli atriða.
Tónleikarnir hefjast kl. 19:00