Heiðurstónleikar Freddie Mercury
Rigg viðburðir kynna í samstarfi við Luxor og Bylgjuna:
Heiðurstónleikar Freddie Mercury í Háskólabíó 5. september. Ein vinsælasta tónleikasýning landsins snýr aftur í tilefni af 80 ára fæðingarafmæli Freddie Mercury 5. september nk. Sýningin hefur verið haldin fyrir fullu húsi í 15 ár. Stórskotalið Rigg viðburða stígur á svið og fer yfir feril þessa stórkostlega listamanns eins og þeim einum er lagið.
Magni, Matti Matt, Eiríkur Hauksson, Friðrik Ómar, Dagur Sigurðsson og Eyþór Ingi koma fram ásamt raddsveit og hljómsveit Rigg viðburða. Hér er á ferðinni viðburður sem enginn aðdáandi Freddie Mercury má missa af á 80 ára afmæli hans.
Sérstök forsala verður 8. maí kl. 11:00 fyrir þá sem skrá sig á póstlista Rigg viðburða á www.rigg.is
Skráning í fullum gangi!
Almenn miðasala hefst 2. júní kl. 11:00.