Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
Í bláum flækjum – Sönglagaskemmtun til heiðurs Bob Dylan

Í bláum flækjum – Sönglagaskemmtun til heiðurs Bob Dylan

11/04/2026 20:30
Edinborgarhúsið, Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður

Í bláum flækjum – Sönglagaskemmtun til heiðurs Bob Dylan

📍 Edinborgarhúsið, Ísafirði
📅 11. apríl 2026
🎟 Takmarkaðir miðar í boði

Þann 11. apríl árið 1961 lék ungur og óþekktur Bob Dylan á sínum fyrstu alvöru tónleikum í New York þegar hann hitaði upp fyrir blúsmanninn John Lee Hooker. 

Sextíu og fimm árum síðar er Bob ennþá að – um þessar mundir er hann á leið til Nebraska og heldur svo áfram sem leið liggur í gegnum miðríki Bandaríkjanna – og ekkert lát á okkar manni. 

Til þess að fagna þessum tímamótum í lífi nóbelsskáldsins, rokkstjörnunnar og gítargutlarans ætlar hljómsveitin Laugardagshjartað að blása til heiðurstónleika í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Í Laugardagshjartanu er, sem fyrr, valin maður í hverju hólfi. 

Hljómsveitin Laugardagshjartað

  • Skúli mennski – gítar, söngur, bassi
  • Sara Hrund Signýjar – píanó, orgel, gítar, söngur
  • Stefán Freyr Baldursson – gítar
  • Baldur Páll Hólmgeirsson – slagverk
  • Gosi (Andri Pétur Þrastarson) – söngur
  • Tinna Ólafsdóttir – bassi, fiðla, söngur
  • Elfar Logi Hannesson – söngur
  • Gylfi Ólafsson – píanó, orgel
  • Kristinn Gauti Einarsson – trommur, slagverk
  • Eiríkur Örn Norðdahl – bassi, gítar, söngur
  • Arnheiður Steinþórsdóttir – söngur
  • Ásta Kristín Pjetursdóttir – víóla, söngur

Lög verða ýmist leikin í frumgerð sinni eða nýrri útsetningu og víða komið við á ferlinum.

🕣 Húsið opnar kl. 20:30
🎶 Tónleikar hefjast fljótlega eftir að gestir hafa komið sér fyrir

Miðaverð

  • Forsala á midix.is: 4.900 kr.
  • Við hurð: 5.900 kr.

⚠️ Takmarkað magn miða í boði – tryggðu þér miða tímanlega.