Blúskvöld í Ölveri
Næsta Blúskvöld Blúsfélags Reykjavíkur fer fram 16. apríl kl. 20:00 á Ölveri í Glæsibæ, og það stefnir í frábæra stemningu.
Blúskvöldið í febrúar var einstaklega vel heppnað og það er engin ástæða til annars en að búast við jafn góðu, ef ekki betra, kvöldi núna.
Á sviðið stíga hljómsveitirnar Litli matjurtagarðurinn, Ungfrúin góða og Fógetarnir, sem færa okkur fjölbreyttan blús í sinni bestu mynd.
Gefðu sófanum frí þetta kvöld og komdu að njóta lifandi tónlistar í góðum félagsskap. Á matseðlinum verða blúsaðir borgarar og kaldur á krana, nákvæmlega eins og það á að vera.
Hljómsveitir kvöldsins
Litli matjurtagarðurinn
Þórður Árnason – gítar
Haraldur Þorsteinsson – bassi
Árni Sigurðsson – söngur og gítar
Kristmundur Jónasson – trommur
Ungfrúin góða
Kristjana Þórey Ólafsdóttir – söngur
Helgi Georgsson – píanó og söngur
Árni Björnsson – gítar
Aðalsteinn Snorrason – gítar
Jón Bjarki Bentsson – bassi
Skúli Thoroddsen – trommur
Fógetarnir
Bjarki Björnsson – gítar og söngur
Kristján Guðmundsson – bassi
Palli Moon – trommur og söngur
🕖 Húsið opnar: 19:00
🎶 Tónleikar hefjast: 20:00
🎟️ Miðaverð: 3.000 kr.
Komdu og njóttu kvöldsins með okkur – alvöru blús í lifandi umhverfi. 🎸