NÝTT
Fjölskyldutónleikar Júlí Heiðars í Þorlákshöfn
17.01.2026 17:00
Versalir, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn
Júlí Heiðar snýr aftur heim til Þorlákshafnar og heldur sína fyrstu fjölskyldutónleika í Versölum, laugardaginn 17. janúar kl. 17:00.
Með honum á sviði verður Dísa, sem tekur þátt í gleðinni og syngur með honum alla hans vinsælustu smelli.
Tónleikarnir eru hugsaðir sem fjölskylduskemmtun fyrir alla aldurshópa, hlý, heimilisleg stemning þar sem allir geta notið saman.
🕓 Húsið opnar: 16:00
🎵 Tónleikarnir hefjast: 17:00
📍 Staður: Versalir – Þorlákshöfn
🎟️ Miðaverð: 5.900 kr.
Komdu og eigðu notalega stund með Júlí Heiðari og Dísu – við hlökkum til að sjá ykkur!