GOLF EXPO 2026
7.–8. mars 2026 | Laugardalshöll | kl. 11:00–17:00 báða daganna
Golf Expo 2026 er tveggja daga golfveisla fyrir alla – hvort sem þú ert með lága forgjöf eða nýbúin/n að taka fyrstu sveifluna.
Keyptur miði gildir báða daganna og veitir fullt aðgengi að fyrirlestrum, kynningum, sýningarsvæði og allri dagskrá helgarinnar.
🎁 1.000.000 kr. happdrætti: Ertu með?
Allir miðahafar fara sjálfkrafa í pottinn!
Heppnir gestir vinna inneignir og gjafabréf frá vel völdum sýnendum, og stærsti vinningurinn er að verðmæti 1 milljón króna.
Stærsti vinningurinn verður dreginn úr pottinum á lokadegi sýningarinnar undir stjórn formanns GSÍ.
Hvað bíður þín?
- Nýjasti golfbúnaðurinn og fatnaðurinn
- Golfhermar og tækni til að prófa á staðnum
- Ráðgjöf frá golfkennurum fyrir byrjendur og lengra komna
- Golfklúbbar, golfpakkaferðir og spennandi áfangastaðir
- Heilsa, líkamsrækt, næring og endurheimt fyrir kylfinga
- Nýjungar í farartækjum og umhverfisvænni tækni
- Sérsniðnar tryggingalausnir fyrir kylfinga
Þetta er staðurinn þar sem golfáhugafólk hittist, fær innblástur og kveikir á sér fyrir golfsumarið framundan.
Hvort sem þú ert að leita að nýjum kylfum, betri sveiflu eða næstu golfferð, þá finnurðu það á Golf Expo 2026.
🎟️ Tryggðu þér miða og vertu með, kannski gengur þú út með milljón í vasanum.