NÝTT
The cost of Growth- bíó með Landvernd
12.11.2025 19:00
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík
The Cost of Growth – Bíókvöld með Landvernd
Hvenær: 12. nóv. Húsið opnar kl. 18:30 · Myndin hefst kl. 19:00
Staður: Bíó paradís
Landvernd býður til kvikmyndasýningar á heimildarmyndinni The Cost of Growth, sem fjallar á áhrifaríkan hátt um réttlæti, lýðræði og baráttuna gegn fölskum lausnum í nafni hagvaxtar.
Myndin varpar ljósi á spurningar sem varða okkur öll:
- Fyrir hvern er hagvöxturinn – og á kostnað hvers?
- Hver er raunverulegur kostnaður mannkyns og plánetunnar fyrir endalausan gróða hagkerfisins?
- Hvað ef loftslagsváin er ekki aðeins náttúrulegt vandamál heldur afleiðing misréttis, græðgi og valdakerfa?
Í kjölfar sýningarinnar gefst tækifæri til umræðna um hvernig samfélag sem byggir á jafnrétti, réttlæti og velferð umfram gróða gæti litið út.
Miðaverð:
Almennt miðaverð: kr. 2.000
Félagsmaður í Landvernd: kr. 1.600
Komdu og taktu þátt í kvöldi þar sem við veltum fyrir okkur framtíð jarðar – og hlutverki okkar í henni.