FÁIR MIÐAR
Þorrablót Grindvíkinga 2026
31.01.2026 20:00
Íþróttahús Grindavíkur, Austurvegur 1-3, 240 Grindavik
Þorrablót Grindvíkinga fer fram í Íþróttahúsinu í Grindavík laugardaginn 31. janúar 2026.
Húsið opnar kl. 18:30 og borðhald hefst kl. 20:00.
Kvöldið verður í höndum Evu Ruza, sem stýrir samkomunni af sinni einstöku snilld.
Gardar og Lalli leiða fjöldasönginn og skapa stemningu eins og þeim einum er lagið.
Stuðlabandið heldur uppi stuði langt fram á nótt og tryggir húllaða dansgólfsstemningu.
Maturinn verður í öruggum höndum þorrakóngsins í Múlakaffi, sem býður upp á þorramat af sinni alkunnu snilld.
Auk þess verður Þorravídeó 2026 frumsýnt – eitthvað sem enginn vill missa af!
Miðaverð: 16.900 kr.