
Bjartir Músíkdagar - Silva & Steini
🎶 Bjartir Músíkdagar – ný tónlistarhátíð í Borgarnesi!
Komdu í Gamla Ráðhúsið dagana 17.–18. maí 2025 og njóttu sex glæsilegra tónleika með framúrskarandi íslensku tónlistarfólki – í einstöku og sögulegu umhverfi við sjávarsíðuna.
Miðasala:
Hægt er að kaupa staka miða á tónleika. Ef þú hyggst sækja þrenna tónleika eða fleiri, þá býðst sértilboð – hafðu samband í síma +354 896 8926 eða með tölvupósti á info@englendingavik.is.
Tónleikatímar:
Laugardagur 17. maí: kl. 14:00, 16:00, 18:00 og 20:00
Sunnudagur 18. maí: kl. 13:00 og 15:00
Húsið opnar 30 mínútum fyrir hvern tónleika.
Samstarfsaðilar:
Landnámssetur Íslands · Hótel Vesturland · Hótel Hamar · Kaffi Kyrrð · Englendingavík
Gestir hátíðarinnar njóta afsláttar af veitingum og gistingu hjá samstarfsaðilum – vinsamlegast hafðu beint samband við viðkomandi staði til að fá frekari upplýsingar.
🙏 Hátíðin er haldin með rausnarlegum stuðningi frá Coca-Cola á Íslandi og Uppbyggingarsjóði Vesturlands.