Bókaálfarnir Una og Snotra og leyndarmál hafsins
Ævintýraleg fjölskyldusýning á Bókasafni Hafnarfjarðar, innblásin af íslenskum álfasögum, þar sem bækur lifna við, frumsamin tónlist ómar og hafið geymir dularfullt leyndarmál.
Í þúsund ár hafa bókaálfarnir Una og Snotra búið í leynilegum bókahelli við sjóinn. Þær eru uppátækjasamir álfar sem elska að safna góðum sögum og ævintýrum. Í gegnum tíðina hafa þær fyllt hellinn af bókum og furðulegum fjársjóðum sem hafið hefur fært þeim.
En þegar þeim berast óvænt skilaboð frá mannsbarni og hafið færist sífellt nær fara undarlegir hlutir að gerast. Á jólanótt breytist allt og bókaálfarnir leggja af stað í stærsta ævintýri lífs síns!
Sýningin er hlý, fyndin og töfrandi. Hún fjallar um vináttu, sköpunarkraft og að þora að stíga inn í óvissuna og skapa sína eigin sögu.
Upplifðu töfrana í návígi!
Börnin sitja fremst á mjúkum og þægilegum sessum, í mikilli nálægð við álfana, en foreldrar og aðrir fullorðnir sitja í sætum fyrir aftan. Þannig fá yngstu áhorfendurnir að upplifa töfrana í bókahellinum alveg í návígi.
Að sýningu lokinni geta börnin látið mynda sig með álfunum og fengið lítið plakat með litamynd til að taka með sér heim.
Sýningar
Sýnt er alla sunnudaga á aðventunni, kl. 13:00 og kl. 15:00:
- Sunnudagur 29. nóvember kl. 13:00 og 15:00 – Frumsýning
- Sunnudagur 6. desember kl. 13:00 og 15:00
- Sunnudagur 13. desember kl. 13:00 og 15:00
- Sunnudagur 20. desember kl. 13:00 og 15:00
Húsið opnar hálftíma fyrir hverja sýningu.
Staðsetning: Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgötu, (2. hæð í Firði)
Lengd: Um 40 mínútur
Miðaverð: Fullorðnir (16 ára og eldri) 4.300 kr. · Börn (15 ára og yngri) 3.900 kr.
Listrænt teymi
- Höfundar, leikarar og sviðsetning: Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir
- Tónlist: Rakel Björk Björnsdóttir og Stefán Örn Gunnlaugsson
- Upptökur og útsetning: Stefán Örn Gunnlaugsson
- Búningar: Viktoría Sigurðardóttir (yfirhönnun), Klara Sigurðardóttir, Stefanía Adolfsdóttir og Freyja Björk Gunnarsdóttir
- Gervi: Hildur Emilsdóttir
- Hljóð- og ljósahönnun og tæknikeyrsla: Konrad Groen
- Sviðsmynd: Sigurður Halldórsson, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir
- Ljósmyndir: Óli Már
- Plakat og kynningarefni: Hafdís Ragnarsdóttir
- Aðstoð við sviðsetningu: Hugrún Margrét Óladóttir
Verkið er framleitt af ÞAU Company.
Sérstakar þakkir fá Bókasafn Hafnarfjarðar, Hafnarfjarðarbær, Þjóðleikhúsið og allir sem voru teyminu til halds og trausts í ferlinu.
Stuðningsaðilar: Lenovo, Ofar, Ísfell, Luxor og Héðinn.
VIÐBURÐIR
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgata, (2. hæð í Firði), 220 Hafnarfjörður
sunnudaginn
13:00
3.900.-4.300 kr.
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgata, (2. hæð í Firði), 220 Hafnarfjörður
sunnudaginn
15:00
3.900.-4.300 kr.
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgata, (2. hæð í Firði), 220 Hafnarfjörður
sunnudaginn
13:00
3.900.-4.300 kr.
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgata, (2. hæð í Firði), 220 Hafnarfjörður
sunnudaginn
15:00
3.900.-4.300 kr.
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgata, (2. hæð í Firði), 220 Hafnarfjörður
sunnudaginn
13:00
3.900.-4.300 kr.
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgata, (2. hæð í Firði), 220 Hafnarfjörður
sunnudaginn
15:00
3.900.-4.300 kr.
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgata, (2. hæð í Firði), 220 Hafnarfjörður
sunnudaginn
13:00
3.900.-4.300 kr.
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgata, (2. hæð í Firði), 220 Hafnarfjörður
sunnudaginn
15:00
3.900.-4.300 kr.