Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Extreme Chill Festival 2026 -Hátíðarpassi

Extreme Chill Festival 2026 -Hátíðarpassi

06.09.2026 20:00
Miðbær Reykjavíkur, 3-6 september , 101 Reykjavík

Tónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram í Reykjavík dagana 3–6. september. Þetta er 17. árið sem hátíðin er haldin. 

Extreme Chill hátíðin er orðin ein af langlífustu tónlistarhátíðum Íslands enda hefur hún verið starfandi óslitið síðustu 16 ár. Hátíðin hefur vakið mikla athygli víða um heim og er orðin mjög mikilvægur partur af tónlistarsenu Íslands með sína sérstöðu sem er fókus á tilraunakennda tónlist, raf- og sveimtónlist. Hátíðin og starfið í kringum hana hefur leitt af sér fjölda útgáfa, tónleika, ferðalaga erlendis og samstarfa við bæði erlenda og innlenda tónlistarmenn, að ótöldum ógleymanlegum uppsetningum á hátíðum erlendis og innanlands sem eru bein afleiðing hátíðarinnar. 

Dagskráin verður kynnt 6. júní. 

Early Bird hátíðarpassinn kostar aðeins 14.900 kr og gildir á alla 4 dagana. 

4 daga tónlistarveisla þar sem íslenskir og erlendir listamenn með ólíkan bakgrunn á öllum aldri mætast í sköpun sinni undir áhrifum íslenskrar náttúru. Einstakur viðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Þetta verður leyndardómsfullt ferðalag um rafræna Reykjavík.