Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Gospeltónleikar

Gospeltónleikar

26.04.2026 16:00
Lindakirkja, Uppsölum 3, 201 Kópavogur

Gospeltónleikar í Lindakirkju 

Sunnudaginn 26. apríl kl. 16:00 verður sannkölluð tónlistarveisla í Lindakirkju þegar gospelnámskeiði helgarinnar lýkur með glæsilegum tónleikum. 

Undir leiðsögn hins öfluga og reynslumikla stjórnanda, Roderick Giles, hafa þátttakendur unnið saman að því að efla söng, samhljóm og framkomu  og nú gefst einstakt tækifæri til að njóta afrakstursins. 

Fram koma:
✨ Kór Lindakirkju
✨ Gospelkór Glerárkirkju
✨ Kór Njarðvíkurkirkju
✨ Vox Gospel
✨ Gospelkór Fíladelfíu 

Kórarnir flytja hver um sig 1–2 lög, auk kraftmikilla sameiginlegra gospelverka sem æfð hafa verið yfir helgina með hljómsveit hússins. 

🎟 Miðaverð: 2.900 kr.
🕒 Húsið opnar: kl. 15:30 

Komdu og upplifðu gleði, kraft og innblástur gospeltónlistarinnar, tónleikar sem fylla hjartað af lífi! 🎶