Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Hálendishátíð

Hálendishátíð

23.04.2026 20:00
IÐNÓ, 101, Vonarstræti 3, Reykjavík

Hálendishátíð – styrktartónleikar fyrir Hálendi Íslands

Sumardagurinn fyrsti verður allsherjar náttúrudagur. Græna ganga þrammar niður á Austurvöll með lúðraþyt og frambjóðendur standa fyrir svörum yfir daginn, en um kvöldið verður Iðnó breytt í tónleikahöll. Við fáum eðal tónlistarfólk til að binda slaufu á þennan stærsta náttúrudag í manna minnum.

Þú vilt ekki missa af þessari einstöku tónlistarveislu. Aðeins 300 miðar í boði.

Með tónleikunum viljum við vekja athygli á dásemdum Hálendisins, en líka benda á þær ógnir sem að því steðja. Markmiðið er að auka skilning og þekkingu á Hálendinu og hvetja fólk til að standa að baki Landvernd í því mikilvæga hlutverki að vera málsvari náttúrunnar, sem ekki getur varið sig sjálf.

Hálendi Íslands er einstök perla á heimsvísu, hvernig sem á það er litið.

Hálendishátíðin eru styrktartónleikar, þar sem ágóðanum verður varið í baráttuna fyrir Hálendi Íslands svo við öll og komandi kynslóðir geti áfram notið dásemda þess.

Dagsetning: 23. apríl – Sumardagurinn fyrsti
Staður: Iðnó
Húsið opnar: 19:30
Miðaverð: 5.900 kr.

Velkomin á kvöld þar sem tónlist, náttúra og samstaða mætast.