Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Heilsugæslan á Þingeyri

Heilsugæslan á Þingeyri

apríl, 2026

🎭 Heilsugæslan – hápólitískur gamanleikur

📍 Félagsheimilið á Þingeyri
💰 Miðaverð: 5.900 kr.

Tvær sýningar:

  • Fimmtudagur 2. apríl kl. 20:00
  • Föstudagur 3. apríl kl. 17:00

Heilsugæslan er beittur og bráðfyndinn gamanleikur eftir lækni sem þekkir kerfið innan frá. Þar takast tveir leikarar á við heilbrigðiskerfið í allri sinni dýrð – og vitleysu.

Elfar Logi Hannesson og Rakel Björk Björnsdóttir bregða sér í öll hlutverk sýningarinnar; lækna, starfsfólk og mishressa sjúklinga. Allt getur gerst þegar beðið er á biðstofu – þar sem hlutirnir hefjast, leysast, velkjast… eða flækjast enn frekar.

Fáir hafa enga skoðun á heilbrigðiskerfinu. Margir kalla það bákn – en enginn vill þó vera án þess.

Þetta er sýning sem lætur þig hlæja, kinkar kolli – og kannski hvísla: „Þetta er nákvæmlega svona!“

Leikarar: Elfar Logi Hannesson, Rakel Björk Björnsdóttir
Höfundur / Tónlist / Leikstjórn: Lýður Árnason
Búningar: Sunnefa Elfarsdóttir
Leikmynd: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Lýsing / Hljóðvinnsla: Sigurvald Ívar Helgason
Framleiðandi: Kómedíuleikhúsið, Íris Sveinsdóttir, Í einni sæng

Tryggðu þér sæti í dag – biðstofan fyllist hratt og það er skárra að hlæja inni í sal en að bíða úti 😉🎭 


VIÐBURÐIR

02.04.2026

fimmtudaginn

20:00

Miðaverð

5.900 kr.

03.04.2026

föstudaginn

17:00

Miðaverð

5.900 kr.