Hverafugl – Melchior
Melchior kemur fram á tónlistarhátíðinni Hverafugl sunnudaginn 28. júní kl. 20:00 í Leikfélaginu í Hveragerði.
Eftir ferðalag hátíðarinnar um ólíka tónlistarstíla, rými og listform bindur hin sögufræga kammerpopphljómsveit Melchior endahnút á Hverafugl með miklum tónlistarbræðingi.
Tónleikarnir kallast á við opnunartónleika hátíðarinnar, þar sem Hvergerðingurinn Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson er í broddi fylkingar. Með einstökum hljóðheimi sínum skapar Melchior lifandi og eftirminnilega lokastund á fyrstu Hverafugl hátíðinni.
Miðaverð:
Almennt miðaverð: 4.500 kr.
Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 3.000 kr.
Frekari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vefsíðunni:
https://www.hverafugl.com/dagskra-2026
Hverafugl er styrkt af Tónlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Suðurlands, Hveragerðisbæ og Hótel Örk.