Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Hverafugl – KIMI Ensemble og nemendur LHÍ

Hverafugl – KIMI Ensemble og nemendur LHÍ

28.06.2026 17:00
Listasafn Árnesinga, Austurmörk 21, 810 Hveragerði

KIMI Ensemble kemur fram á tónlistarhátíðinni Hverafugl sunnudaginn 28. júní kl. 17:00 í Listasafni Árnesinga.

KIMI Ensemble er margrómaður nútímatónlistarhópur með aðsetur í Kaupmannahöfn. Hópinn skipa Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmóníkuleikari, Katerina Anagnostidou slagverksleikari og Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söngkona.

Á tónleikunum flytur KIMI Ensemble ný verk eftir tónsmíðanemendur Listaháskóla Íslands. Þar fá áheyrendur að kynnast ferskum röddum í íslenskri samtímatónlist í flutningi framúrskarandi tónlistarfólks.

Miðaverð:
Almennt miðaverð: 4.500 kr.
Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 3.000 kr.

Frekari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vefsíðunni:
https://www.hverafugl.com/dagskra-2026

Hverafugl er styrkt af Tónlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Suðurlands, Hveragerðisbæ og Hótel Örk.