Í bláum flækjum – Sönglagaskemmtun til heiðurs Bob Dylan
Í bláum flækjum – Sönglagaskemmtun til heiðurs Bob Dylan
📍 Edinborgarhúsið, Ísafirði
📅 11. apríl 2026
🎟 Takmarkaðir miðar í boði
Þann 11. apríl árið 1961 lék ungur og óþekktur Bob Dylan á sínum fyrstu alvöru tónleikum í New York þegar hann hitaði upp fyrir blúsmanninn John Lee Hooker.
Sextíu og fimm árum síðar er Bob ennþá að – um þessar mundir er hann á leið til Nebraska og heldur svo áfram sem leið liggur í gegnum miðríki Bandaríkjanna – og ekkert lát á okkar manni.
Til þess að fagna þessum tímamótum í lífi nóbelsskáldsins, rokkstjörnunnar og gítargutlarans ætlar hljómsveitin Laugardagshjartað að blása til heiðurstónleika í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Í Laugardagshjartanu er, sem fyrr, valin maður í hverju hólfi.
Hljómsveitin Laugardagshjartað
- Skúli mennski – gítar, söngur, bassi
- Sara Hrund Signýjar – píanó, orgel, gítar, söngur
- Stefán Freyr Baldursson – gítar
- Baldur Páll Hólmgeirsson – slagverk
- Gosi (Andri Pétur Þrastarson) – söngur
- Tinna Ólafsdóttir – bassi, fiðla, söngur
- Elfar Logi Hannesson – söngur
- Gylfi Ólafsson – píanó, orgel
- Kristinn Gauti Einarsson – trommur, slagverk
- Eiríkur Örn Norðdahl – bassi, gítar, söngur
- Arnheiður Steinþórsdóttir – söngur
- Ásta Kristín Pjetursdóttir – víóla, söngur
Lög verða ýmist leikin í frumgerð sinni eða nýrri útsetningu og víða komið við á ferlinum.
🕣 Húsið opnar kl. 20:30
🎶 Tónleikar hefjast fljótlega eftir að gestir hafa komið sér fyrir
Miðaverð
- Forsala á midix.is: 4.900 kr.
- Við hurð: 5.900 kr.
⚠️ Takmarkað magn miða í boði – tryggðu þér miða tímanlega.