NÝTT
Jólablús Blúsfélags Reykjavíkur 2025
18.12.2025 20:00
Ölver Sportbar, Álfheimar 74, 104 Reykjavík
Árlegur Jólablús Blúsfélags Reykjavíkur fer fram í Ölveri þann 18. desember kl. 20:00.
Viðburðurinn hefur um langt skeið verið ómissandi hluti af jólaundirbúningi margra blúsunnenda, sem hafa fyllt salinn af trúfesti í tæpa tvo áratugi.
Að þessu sinni stígur á svið úrval íslenskra tónlistarmanna:
- Ásgeir Óskarsson – trommur & söngur
- Ragga Gröndal – söngur
- Davíð Þór Jónsson – hljómborð
- Jón Ólafsson – bassi & söngur
- Guðmundur Pétursson – gítar & söngur
Einnig má búast við óvæntum gestum.
Hópurinn mun færa áheyrendum sannkallaða blúsveislu og skapa einstaka stemningu í aðdraganda jóla. Ekki láta þessa tónlistarhátíð fram hjá þér fara!