NÝTT
Jólatónleikar Jórukórsins
04.12.2026 19:00
Hveragerðiskirkja, Brattahlíð 18, 810 Hveragerði
Jólatónleikar Jórukórsins eru orðnir ómissandi hluti af aðventunni hjá mörgum. Í ár bjóðum við upp á líflega og skemmtilega tónleika þar sem jólalög, kúrekastemning og fjörug sönglög blandast saman á óvæntan hátt.
Taktu frá stund fyrir söng, gleði og góða skemmtun. Þú kemst í jólaskap með Jórukórnum!
Hvenær: Föstudaginn 4. desember kl. 19:00
Hvar: Hveragerðiskirkja
Miðaverð:
- Almennur miði: 4.900 kr.
- Börn 7–12 ára: 1.500 kr.
- Börn 6 ára og yngri: frítt
Tryggðu þér miða tímanlega. Það hefur verið uppselt síðustu ár!