Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Jólin heima

Jólin heima

desember, 2026

Jólin heima eru hátíðlegir jólatónleikar þar sem heimafólk sameinast í tónlist, jólagleði og hlýlegri stemningu í aðdraganda jóla.

Á tónleikunum kemur saman öflugt tónlistarfólk úr Ísafjarðarbæ og nágrenni og býður gestum upp á fallega og eftirminnilega tónlistarupplifun. Um leið er markmiðið að styðja við og styrkja hið öfluga tónlistarlíf á svæðinu.

Hluti ágóðans rennur til hljóðfærasjóðs Tónlistarskólans á Ísafirði.

Fram koma ásamt hljómsveit

Arnheiður Steinþórsdóttir
Dagný Hermannsdóttir
Hjördís Þráinsdóttir
Martha Kristín Pálmadóttir
Sara Hrund Signýjardóttir
Simbi Sveinbjörn Hjálmarsson
Skúli Þórðarson

Hljómsveit

Hljómsveitarstjóri / píanó / synthar / saxófónn: Smári Alfreðsson
Píanó: Alfreð Erlingsson
Gítar: Stefán Freyr Baldursson
Bassi: Þorsteinn Bragason
Trommur: Jorge Sesinando

11. og 12. desember 2026
Húsið opnar kl. 19:30 – tónleikar hefjast kl. 20:00 báða daga

Ekki missa af einstakri jólastund þar sem tónlist, heimafólk og jólaandinn mætast.

Tryggðu þér miða og komdu í jólaskap með okkur!
 

VIÐBURÐIR

11.12.2026

föstudaginn

20:00

Miðaverð

3.500.-6.900 kr.

12.12.2026

laugardaginn

20:00

Miðaverð

3.500.-6.900 kr.