NÝTT
Kvennakór Reykjavíkur – Í allri sinni dýrð
05.12.2026 17:00
Víðistaðakirkja, Garđavegi 23, 220 Hafnarfjörður
Kvennakór Reykjavíkur verður „í allri sinni dýrð“ á jólatónleikum í Víðistaðakirkju laugardaginn 5. desember kl. 17:00.
Flutt verður fjölbreytt jólatónlist, hátíðleg, hlý, ljúf og einlæg, en ekki síður glaðvær og gleðileg. Á efnisskránni eru meðal annars klassíska perlan Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns, Laudate Dominum eftir Mozart og A Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten, ásamt íslenskum jafnt sem erlendum jólasálmum og þjóðlögum.
Flytjendur
- Kvennakór Reykjavíkur
- Einsöngur: Hallveig Rúnarsdóttir
- Píanó: Aladár Rácz
- Harpa: Gunnhildur Einarsdóttir
Kvennakór Reykjavíkur býður upp á sannkallaða jólastund á aðventunni og býður ykkur öll hjartanlega velkomin.