Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Lífið er lotterí

Lífið er lotterí

júlí, 2024

Lífið er lotterí er söngdagskrá tileinkuð textasmiðnum og leikskáldinu Jónasi Árnasyni. Hver kannast ekki við slagara á borð við Langi Mangi, Við heimtum aukavinnu, Hæ hoppsasí, Riggarobb, Einu sinni á ágústkvöldi, Augun þín blá og þannig mætti lengi telja. Sýningunni hefur verið frábærlega vel tekið og sýnd margsinnis í Kómedíuleikhúsinu við dillandi og dirrindí fjöldasöng gesta. 

Segja má um Jónas með hans eigin orðum úr einu af hans vinsælu söngtextum, sem kóngur ríkti hann, og bæta við yfir leiksviði og fjöldasamkomum í áratugi og gjörir enn. Þegar landsmenn koma saman þá er oftar en ekki sungið eitthvað úr smiðju Jónasar Árnasonar. 

Þetta verður syngjandi hér og syngjandi þar skemmtilegt kveld þar sem þrjú á sviði munu flytja perlur Jónasar og allir syngja með. 

Sýningardagar: miðvikudaginn 10. júlí, föstudaginn 12. júlí, föstudaginn 26. júlí og laugardaginn 27. júlí. nk.
Húsið opnar kl. 19:30 og viðburður hefst kl. 20:00.

VIÐBURÐIR

10.07.2024

miðvikudaginn

20:00

Miðaverð

4.900 kr.

12.07.2024

föstudaginn

20:00

Miðaverð

4.900 kr.

26.07.2024

föstudaginn

20:00

Miðaverð

4.900 kr.

27.07.2024

laugardaginn

20:00

Miðaverð

4.900 kr.