Morgunverðarfundur RannUng – Leikskólinn og yngstu börnin
RannUng býður til morgunverðarfundar föstudaginn 13. mars 2026 kl. 8:30–11:00 á Grand Hóteli, í salnum Háteigi. Fundurinn hefst á glæsilegu morgunverðarhlaðborði þar sem þátttakendur fá tækifæri til að hittast og eiga notalega stund saman áður en dagskrá hefst.
Yfirskrift fundarins er „Leikskólinn og yngstu börnin“, þar sem sjónum verður beint að starfsþróun, rannsóknum og faglegum áskorunum í starfi með yngstu börnum leikskólans. Fjallað verður um leiðtogahlutverk, þróun leikskólastarfs, mikilvægi leiks, samskipta og þátttöku ungra barna.
Dagskrá – föstudagurinn 13. mars 2026 (Háteigur, Grand Hótel)
8:30–9:00 Morgunverður
Dr. Sara Margrét Ólafsdóttir, forstöðumaður RannUng, setur fundinn og fundarstjóri tekur við.
Leiðtogahlutverk í mótun starfs með yngstu börnunum – áskoranir og úrræði
Jóna Rún Gísladóttir, leikskólastjóri við Hulduberg, fjallar um áskoranir sem leikskólastjórar í ungbarnaleikskólum standa frammi fyrir og leiðir til að mæta þeim með vellíðan og hagsmuni yngstu barnanna að leiðarljósi.
Að þróa leikskólastarf með yngstu börnunum
Dr. Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kynnir starfendarannsókn sem unnin var í þremur leikskólum þar sem leikskólastarf með yngstu börnunum var þróað.
Sköpum rými og tíma fyrir ærslaleik ungra barna
Hugrún Helgadóttir, deildastjóri og leikskólakennari í Jötunheimum, segir frá því hvernig hún hefur nýtt niðurstöður rannsóknar sinnar til að þróa starfshætti og efla samskipti ungra barna á deild.
Fullgildi og yngstu börnin: Vangaveltur um þátttöku og áhrifamátt ungra leikskólabarna
Dr. Bryndís Gunnarsdóttir, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, fjallar um óyrt samskipti í jafningjahóp yngstu barna, félagslega samheldni þeirra og hvað það segir okkur um þátttöku og áhrifamátt í leikskólastarfi.
Samantekt
11:00 Fundi slitið
Kvittun vegna miðakaupa á kennitölu
Óski kaupandi eftir kvittun fyrir miðakaupum á kennitölu er bent á að senda tölvupóst á info@midix.is með eftirfarandi upplýsingum:
Netfang miðakaupanda
Miðapöntunarnúmer
Kennitala sem óskað er eftir að kvittun sé skráð á.
Fundurinn er ætlaður öllum sem hafa áhuga á leikskólastarfi með yngstu börnunum, þar á meðal leikskólastjórum, kennurum, fræðimönnum og öðrum fagfólki á sviðinu.