Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NEW EVENT
Pöddupanik í Laugardalslaug

Pöddupanik í Laugardalslaug

júlí, 2025

Velkomin í brúðkaup aldarinnar – í skordýraheimum!

Í þessari splunkunýju og bráðfyndnu leiksýningu frá leikhópnum Við erum þau – Erum við þau? fylgjumst við með flóknum samskiptum tveggja óvinafjölskyldna sem ætla að sameinast í gegnum hjónaband barna sinna: Blængs Vængssonar og Fjútífjú Skröltnes.

En það er einn hængur á vængnum!
Bókstaflega ekkert gengur samkvæmt áætlun – veitingarnar týnast, brúðkaupshárið gleymist og óboðnir gestir, svo sem óþekktarormurinn og nornin Lúsía, setja allt á annan endann.

Sýningin er skemmtileg, súrrealísk, gleðileg og örlítið í óreiðu – rétt eins og góð brúðkaup eiga að vera.
Hún hentar öllum skordýrum, stórum sem smáum, og auðvitað líka mannfólki á öllum aldri.

Leiksýningin er búin til af 13 ungmennum í unglingavinnunni, sem settu hana saman á þriggja vikna tímabili undir handleiðslu Helga Gríms Hermannssonar.

Staður:
Laugardalslaug
Áhorfendur koma að pylsuvagninum – þar tekur maður í bleikum jakka á móti ykkur og gefur frekari leiðbeiningar.

Sýningartímar:

  • 1. júlí kl. 16:30 og kl. 20:00
  • 2. júlí kl. 11:00

Hver sýning er um 70 min að lengd.

Móttökustofa opnar 30 mínútum fyrir sýningu.

Leikhópurinn:
Ágústa Fríður Skúladóttir • Álfrún Hugadóttir • Árni Ólafur B. Torfason • Bjarni Gunnar Jensson • Helgi Daníel Hannesson • Hildur Óskarsdóttir • Hrafnhildur Eva Brekadóttir • Indigó Iðunn Þorkels • Júlía Hilmarsdóttir • Kolbrún Jóhanna Sveinsdóttir • Nói Þór Arnarsson • Viktor Mar Ólafsson • Þórunn María Reynisdóttir

Aðstoðarfólk:
Huginn Bjarki Ragnarsson • Sóley Vala Fjölnisdóttir.


VIÐBURÐIR

01.07.2025

þriðjudaginn

16:30

Miðaverð

2.490 kr.

01.07.2025

þriðjudaginn

20:00

Miðaverð

2.490 kr.

02.07.2025

miðvikudaginn

11:00

Miðaverð

2.490 kr.