Risatónleikar XXX Rottweilerhunda í Laugardalshöll 17. maí
17.05.2024 18:00
Laugardalshöll, Engjavegur 8, 104 Reykjavík
XXX Rottweilerhundar, stærsta rapphljómsveit íslenskrar tónlistarsögu og textagerðar, heldur risatónleika í Laugardalshöll föstudaginn 17. maí n.k. í samstarfi við Víking Léttöl
„Það er alveg óhætt að lofa rosalegri sýningu, stemningin sem myndast á tónleikum okkar hefur alltaf verið bandbrjáluð. Við erum svo fáránlega æstir í að leggja allt okkar í hvert einasta smáatriði, fyrir fulla Laugardalshöll af okkar yfirburða aðdáendum“ segir Ágúst Bent Sigbertsson, Bent, um tónleikana.
Húsið opnar kl. 18:00 og tónleikarnir hefjast kl. 20:00.
Aldurstakmark er 18 ára
VIP Miðar - 100.000kr.- stk
- Sérstakur VIP inngangur í höllina
- Aðgangur að VIP herbergi með svölum sem snúa að sviðinu.
- Smáréttarhlaðborð frá LUX veitingum
- Prívat bar og allir drykkir innifaldir í VIP herberginu.
- Sumargjöf xxxRottweiler hunda - Bolur, Áritað plakat og hundahálsmen.
- Félagsskapur úr efri hillu - Hundarnir munu láta sjá sig í VIP herberginu fyrir tónleika.
- Aðgangur að Eftirpartýi XXX Rottweiler hunda
- Miðinn gildir fyrir einn