
Stórsýningin FIT&RUN 2025
Komdu á stórsýninguna FIT&RUN sem haldin verður í Laugardalshöll, daganna 21. og 22. ágúst nk. samhliða afhendingu gagna í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.
Þar verða um 70 sýnendur sem kynna þar og selja vörur sínar og þjónustu. Heimasíða sýningarinnar er á slóðinni www.fitrunexpo.is
Á sýningunni gefst frábært tækifæri til að kynna sér allt það nýjasta á markaðinum í fatnaði, hlaupaskóm, næringu, undirbúningi o.fl. fyrir hlaupið.
Frábær tilboð í gangi meðan á sýningunni stendur.
Sýningin er opin:
Fimmtudagur, 21. ágúst: Frá kl. 14:00 – 20:00
Föstudagur, 22. ágúst: Frá kl. 14:00 - 20:00
Þeir sem eru skráðir í Reykjavíkurmaraþonið fá frítt inn á sýninguna.
Miðaverð aðeins kr. 950 og rennur kr. 200 af hverjum seldum miða í pott sem dregið verður úr og rennur upphæðin til eins af þeim góðgerðarfélögum sem taka þátt á sýningunni.
Til að gera þetta enn skemmtilegra leynast vinningar sem verða dregnir úr seldum miðum!
Í lok sýningarinnar verða dregnir út þrír miðakaupendur sem hljóta boðsmiða á flotta tónlistarviðburði að andvirði kr. 25.000 hver vinningur.
Frítt fyrir 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.
Komdu til að smakka, snerta, sjá og heyra.... og gerðu góð kaup í leiðinni.
VIÐBURÐIR
Laugardalshöllin , Engjavegur 8, 104, Reykjavík
föstudaginn
14:00
950.-1.500 kr.