🔥 ALVÖRU ’80s PARTÝ – DANSLEIKUR/BALL Í HLÉGARÐI! 🔥
Hr. Eydís & Erna Hrönn – Alvöru ’80s ball í Hlégarði
Hr. Eydís og Erna Hrönn mæta í Hlégarð í Mosfellsbæ laugardaginn 24. október og blása til alvöru ’80s balls!
Þau sem hafa komið á Hr. Eydís og Ernu Hrönn áður vita nákvæmlega hvað er í vændum — magnað ’80s stuð, troðfullt dansgólf og hver stórsmellurinn á fætur öðrum.
Stærstu lög þessa ógleymanlega áratugar verða í aðalhlutverki; lög sem allir þekkja, syngja hástöfum með og nánast ómögulegt er að sitja kyrr yfir.
Duran Duran, Wham!, Bon Jovi, Madonna, Whitney Houston, Prince og margt, margt fleira. ❤️🔥
Dagskrá kvöldsins:
- Húsið opnar kl. 21:30
- DJ hitar upp frá kl. 21:45–22:45
- Hr. Eydís & Erna Hrönn taka yfir dansgólfið kl. 22:45–01:00
Hópaafsláttur:
Hópar og fyrirtæki sem kaupa 10 miða eða fleiri fá sjálfkrafa 500 kr. afslátt af hverjum miða.
Finndu ’80s dressið, taktu dansskóna fram og sjáumst á alvöru ’80s balli í Hlégarði! 😎🎶