Hverafugl - Hátíðarpassi
Hverafugl er ný sumartónlistarhátíð í Hveragerði sem fer fram dagana 26. til 28. júní 2026.
Hátíðin leggur áherslu á samtímatónlist en er um leið lifandi vettvangur þar sem ólíkar tónlistarstefnur, listform og stemningar mætast. Dagskráin er unnin í nánu samstarfi við heimafólk og stór hluti hennar tengist svæðinu, sögu þess, náttúru og mannlífi.
Tónleikar og viðburðir fara fram víðsvegar um Hveragerði, gjarnan á óhefðbundnum og spennandi stöðum sem skapa einstaka nálægð milli flytjenda, áhorfenda og umhverfis. Þar má meðal annars nefna Sundlaugina Laugaskarði, Blómaborg og Bananahús Garðyrkjuskólans á Reykjum.
Listrænt teymi Hverafugls skipa Halldór Smárason, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir.
Miðaverð:
Almennt miðaverð: 12.000 kr.
Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 8.000 kr.
Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vefsíðunni:
https://www.hverafugl.com/dagskra-2026
Hverafugl er styrkt af Tónlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Suðurlands, Hveragerðisbæ, Hótel Örk og Kjörís.
Keyptur miði gildir á alla hátíðina.