Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

Duft & Patronian tónleikar

Duft & Patronian tónleikar

18/10/2025 19:00
Sólvöllum 3, 350 Grundarfirði

Þungarokkssveisla í Grundarfirði!

Laugardaginn 18. október 2025 kl. 19:00 breytist Samkomuhúsið í Grundarfirði í sannkallaðan suðupott þungarokks og öfgatónlistar.

Á sviðið stíga:

🎸 Duft – harðkjarna- og öfgarokkssveit sem hefur slegið í gegn síðan frumraunin Altar of Instant Gratification kom út árið 2024. Þeir mála dökkan hljóðheim og flytja hálsbrjótandi slagara sem engan skilja ósnortinn.

🎸 Patronian – dauðarokkssveit stofnuð árið 2021 sem hlaut lof fyrir plötuna Stabbed with Steel árið 2022. Öflug spilamennska og beittar lagasmíðar hafa tryggt þeim sess sem einni áhugaverðustu nýju þungarokksveit landsins.

🤘 Bergmenn – sérstakir heiðursgestir kvöldsins.
Það er okkur sönn ánægja að kynna hljómsveitina Bergmenn, sem skipuð er þremur ungum herrum úr Grundarfirði með brennandi ástríðu fyrir rokktónlist.
Einir Hugi sér um að berja húðir, Hákon Rúnar plokkar bassann og Haukur Orri leikur á gítar.
Við bjóðum Bergmenn sérstaklega velkomna í þetta ævintýri og hlökkum til að verða vitni að frumraun þeirra á sviðinu – sannkölluð upprisa rokkandans í Grundarfirði!

Þetta verður kvöld fullt af orku, krafti og ógleymanlegrar tónlistarupplifunar.

Staður: Samkomuhúsið í Grundarfirði
Dagsetning: Laugardagur 18. október 2025
Tími: Kl. 19:00