
MARC MARTEL: ONE VISION OF QUEEN
NORDIC LIVE EVENTS KYNNIR MARC MARTEL: ONE VISION OF QUEEN
Marc Martel er Íslendingum að góðu kunnur, hafandi leikið listir sínar fyrir troðfullri Laugardalshöll í apríl 2022. Nú er hann, ásamt hljómsveit sinni, á leiðinni aftur til landsins og að þessu sinni í mun meiri nálægð við tónleikagesti, í Háskólabíó.
Marc Martel er raddtvífari Freddie Mercury og hefur ferðast um heim allan til að flytja stærstu smelli Queen ásamt hljómsveit sinni. Marc er söngrödd Freddie í Óskarsverðlaunamyndinni Bohemian Rhapsody, sem fjallar um sögu Queen.
Hann hefur einnig komið fram með sjálfum meðlimum Queen og einnig með sinfóníuhljómsveitum sem flytja Queen lög, slíkur er hæfileiki Marc.
Allir aðdáendur Freddie Mercury og Queen ættu alls ekki að láta þennan viðburð fram hjá sér fara því hér er einstakt tækifæri á að upplifa öll lögin, flutt á óviðjafnanlegan máta. Það þarf ekki annað en að skoða lifandi flutning á netinu til að sjá hversu magnaður drengurinn er.
Aðeins er selt í sæti og því um takmarkað miðaframboð að ræða.
Húsið opnar kl. 19:00 og tónleiknarnir hefjast kl. 20:00
Ekkert aldurstakmark.
Framleiðsla: Nordic Live Events