NEW EVENT
Hátíð í bæ – Jólatónleikar á Akranesi
13/12/2026 16:00
Bíóhöllin, Vesturgata 27, 300 Akranesi
Hátíð í bæ – Jólatónleikar í Bíóhöllinni
Kalman – tónlistarfélag Akraness og Kór Akraneskirkju bjóða til hátíðlegra jólatónleika í Bíóhöllinni á Akranesi sunnudaginn 13. desember kl. 16.
Komdu og njóttu aðventunnar með fallegri jólatónlist í notalegu umhverfi. Fram koma Kór Akraneskirkju, Barnakór, Tríó Kjartans Valdemarssonar og Strengjasveit, ásamt gestum. Sérstakur gestur tónleikanna er Pálmi Gunnarsson. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson.
Þetta er tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna til að komast í jólaskapið.
📅 Sunnudagur 13. desember kl. 16:00
📍 Bíóhöllin, Akranesi
🎟️ Miðaverð: 7.500 kr.