Hverafugl - CAPUT: Hróðmar og afleggjarar
CAPUT kemur fram á tónlistarhátíðinni Hverafugl föstudaginn 26. júní kl. 20:00 í sal Grunnskólans í Hveragerði.
Á tónleikunum flytur CAPUT verkið Stokkseyri eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, auk verka eftir nokkra af nemendum hans. Þar á meðal eru verk eftir Báru Gísladóttur, Gísla Magnússon, Herdísi Stefánsdóttur og Snorra Hallgrímsson.
Tónleikarnir bjóða upp á fjölbreytta efnisskrá samtímatónlistar þar sem ólík tónmál, stemningar og listrænar nálganir mætast í flutningi eins öflugasta samtímatónlistarhóps landsins.
Efnisskrá:
Gísli Magnússon: Draumsýn
Herdís Stefánsdóttir: Verbúðin
Snorri Hallgrímsson: The Girl in the Dark
Bára Gísladóttir: the worlds within our petty voids
Hlé
Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson: Stokkseyri
Miðaverð:
Almennt miðaverð: 4.500 kr.
Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 3.000 kr.
Frekari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vefsíðunni:
https://www.hverafugl.com/dagskra-2026
Hverafugl er styrkt af Tónlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Suðurlands, Hveragerðisbæ og Hótel Örk.