Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
Í bláum flækjum – Sönglagaskemmtun til heiðurs Bob Dylan

Í bláum flækjum – Sönglagaskemmtun til heiðurs Bob Dylan

24/05/2026 20:30
Edinborgarhúsið, Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður

Í bláum flækjum – Sönglagaskemmtun til heiðurs Bob Dylan

📍 Edinborgarhúsið, Ísafirði
📅 24. maí 2026
🎟 Takmarkaður miðafjöldi í boði

Árið 1961 lék ungur og óþekktur Bob Dylan á sínum fyrstu alvöru tónleikum í New York þegar hann hitaði upp fyrir blúsmanninn John Lee Hooker. Sextíu og fimm árum síðar er Bob ennþá að og ekkert lát á okkar manni. Til þess að fagna þessum tímamótum í lífi nóbelsskáldsins, rokkstjörnunnar og gítargutlarans ætlar hljómsveitin Laugardagshjartað að blása til heiðurstónleika í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Í Laugardagshjartanu er, sem fyrr, valin maður í hverju hólfi:

Skúli mennski (gítar, söngur)
Sara Hrund Signýjar (píanó, gítar, söngur)
Stefán Freyr Baldursson (gítar, dobró)
Baldur Páll Hólmgeirsson (slagverk)
Gosi – Andri Pétur Þrastarson (söngur, gítar)
Tinna Ólafsdóttir (bassi, fiðla, söngur)
Elfar Logi Hannesson (söngur)
Gylfi Ólafsson (píanó, orgel)
Kristinn Gauti Einarsson (trommur, slagverk)
Eiríkur Örn Norðdahl (bassi, gítar, söngur)
Arnheiður Steinþórsdóttir (söngur, munnharpa)
Vésteinn Guðjónsson (munnharpa)

Lög verða ýmist leikin í frumgerð sinni eða nýrri útsetningu og víða komið við á ferlinum. 

🕣 Húsið opnar kl. 20:30
🎶 Tónleikar hefjast fljótlega eftir að gestir hafa komið sér fyrir

Miðaverð

  • Forsala á midix.is: 4.900 kr.
  • Við hurð: 5.900 kr.