Jóla-Drag Bröns Akureyri
HO HO HO, ELSKURNAR FYRIR NORÐAN!
Drottningarnar mæta norður með glamúrinn, glimmerið og jólaskapið í botni!
JÓLA DRAG BRÖNS Á MÚLABERGI – LAUGARDAGINN 19. DESEMBER
Við setjum smá extra glamúr í desember, kryddum hátíðarnar með drama og toppum allt með drag-dýrð. Hvort sem þú hefur verið naughty eða nice ertu meira en velkomin/n í jólabröns sem verður allt annað en hefðbundinn!
Taktu með þér vinina, saumaklúbbinn, gæsapartýið, ömmu eða your special one. Eða mættu bara ein/n og leyfðu okkur að sjá um ástina!
Við lofum glamúr-overdose, glimmeri á röngum stöðum, hælum í hæstu hæðum og atriðum sem koma þér í jólaskap áður en þú nærð að segja Merry Slay-mas!
BRÖNSINN
Veldu vegan eða hefðbundinn bröns og gæddu þér á kræsingum milli atriða.
DAGSKRÁ
Húsið opnar: 12:30
Sýningin hefst: 13:00
Um tvær klukkustundir af drag-dýrð, hlátri og hátíðlegu stuði, með stuttum hléum til að ná andanum og laga varalitinn.
GOTT AÐ VITA
Staður: Múlaberg, Akureyri
Hjólastólaaðgengi er í húsinu.
Kallaðu saman klíkuna, stilltu hælana og mættu í jólabröns með stæl!
Sjáumst í jólafárinu, Akureyri!