Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

Stína Ágústsdóttir

Stína Ágústsdóttir

16/06/2024 21:00
Græni Hatturinn, Hafnarstræti, 600 Akureyri

Tveggja tónleika túrinn - Græni Hatturinn og Jómfrúin!

STÍNA ÁGÚSTSDÓTTIR er ein fremsta jazz- og jazzpoppsöngkona landsins og hefur skapað sér nafn á senunni í Skandinavíu með sinni óviðjafnanlegu rödd. Hún hefur gefið út fjórar sólóplötur og fyrir þær þrjár síðustu hefur Stína fengið tilnefningu til íslensku tónlistarverðlaunanna. 

Hún vinnur reglulega með tónlistar”legends” eins og Morgan Ågren (Zappa) og Henrik Linder (Dirty Loops) en hefur farið víða í samstarfi og unnið með Bjarka Ómars (Bomarz, PBT, Júlí Heiðar ofl), Hilmari Jenssyni, Stórsveit Reykjavíkur ofl. 

Stína hefur nú tekið upp fimmtu stúdíóplötu sína sem kemur út seinna á árinu og ber heitið Yours Unfaithfully. Hljómsveitin mun flytja nokkur lög af þeirri plötu ásamt vel völdum lögum af fyrri plötum ásamt popp- og jazzslögurum í skemmtilegum útgáfum. 

Með Stínu á sviðinu verða eintómir snillingar, Mikael Máni gítarleikari, Magnús Jóhann píanóleikari, Henrik Linder bassaleikari og Magnús T. Elíassen trommuleikari. Búast má við mögnuðu stuði og hljóðfæraleik af dýrara taginu...................