Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
Tóti trúbador í Kómedíuleikhúsinu

Tóti trúbador í Kómedíuleikhúsinu

18/07/2026 20:00
Kómedíuleikhúsið Haukadal, Svalvogavegur , 471 Dýrafjörður

Tóti trúbador, Bílddælingurinn Þórarinn Hannesson, mætir í hið sígræna Kómedíuleikhús í Haukadal með einstaka og tvískipta tónleikaupplifun.

Í fyrri hluta kvöldsins flytur Tóti eigin lög við texta eftir ýmis skáld, þar sem gestir fá að njóta tónlistar úr ríkulegum lagasjóði hans. Í seinni hlutanum verða áheyrendur sjálfir í aðalhlutverki þegar Tóti leiðir sprellfjörugan fjöldasöng með lögum sem allir þekkja.

Tóti á að baki tæplega 50 ára feril í tónlist, bæði sem söngvaskáld og meðlimur í fjölda hljómsveita. Þá hefur hann starfað með sönghópum, kvæðamannafélögum og kórum og komið fram með gítarinn við ótal tækifæri víða um land.

Á árunum 2001 til 2014 gaf Tóti út fimm geisladiska með frumsömdu efni og munu lög af þeim hljóma í fyrri hluta tónleikanna, ásamt nýju efni. Eftir gott hlé verður síðan blásið til kraftmikils samsöngs þar sem markmiðið er einfalt, að lyfta þakinu af húsinu!

Komdu og njóttu hlýrrar, skemmtilegrar og lifandi tónleikastundar í Kómedíuleikhúsinu.