Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
Blús við höfnina

Blús við höfnina

27/06/2026 15:00
ÆGIR 220, Strandgata 90, 220 Hafnarfjörður

Það er sannkölluð blúsveisla framundan í Ægi 220 í Hafnarfirði, laugardaginn 27. júní kl. 15:00–00:00.

Margir af fremstu blúsurum landsins stíga á svið og leggja málefninu lið á stórtónleikum til styrktar Píeta samtökunum.

Á dagskrá verða 13 hljómsveitir, glæsileg bílasýning frá Krúser og dýrindis matvagnar verða á svæðinu.

Allur ágóði af miðasölu rennur óskiptur til Píeta samtakanna og allt tónlistarfólk gefur vinnu sína til styrktar þessu mikilvæga málefni.

Við hvetjum miðakaupendur sem hafa tök á að bæta við frjálsu styrktarframlagi þegar miðinn er keyptur. Þannig getur hver og einn lagt sitt af mörkum, umfram miðaverðið, og stutt enn frekar við starf Píeta samtakanna.

Fyrir þau sem komast ekki á tónleikana er einnig hægt að styrkja Píeta samtökin beint hér:
https://pieta.is/styrkja-samtokin/

Gestir geta farið af svæðinu og komið aftur að vild meðan á viðburðinum stendur. 

Staðsetning: Ægir 220, Strandgata 90, Hafnarfirði
Húsið opnar: kl. 14:30
Tónleikar hefjast: kl. 15:00
Bílasýning frá: kl. 15:00
Miðaverð: 3.900 kr.

Dagskrá
15:00–15:30, Fógetarnir
15:40–16:10, GG Blús
16:20–16:50, Blússveit Jonna Ólafs
17:00–17:30, MMG
17:40–18:10, Hráefni
18:20–18:50, Ungfrúin
19:00–19:30, Lame Dudes
19:40–20:10, CC Fleet
20:20–20:50, Bjössi Thor
21:00–21:30, Krummi
21:40–22:10, Beggi Smári, Beggi Morthens, Þorleifur Guðjóns, Einar Scheving og Gunnar Örn
22:20–22:50, Gummi P
23:00–23:30, Ebenezer

Fram koma meðal annars:
Guðmundur Pétursson, Krummi Björgvinsson, Björn Thoroddsen, Óskar Logi, Beggi Smári, Beggi Morthens, Þorleifur Guðjóns, Einar Scheving, Ebenezer, CC Fleet Blues Band, Lame Dudes, Ungfrúin, Hráefni, MMG, Blússveit Jonna Ólafs, GG Blús og Fógetarnir. 

Við hvetjum alla blúsunnendur, bílaáhugafólk og velunnara Píeta samtakanna til að mæta og eiga ógleymanlegan dag saman við höfnina.