Blúskvöld Blúsfélags Reykjavíkur
Síðasta Blúskvöldið fyrir sumarfrí hjá Blúsfélag Reykjavíkur fer fram 14. maí kl. 20:00 á Ölver í Glæsibæ, og það stefnir í frábært kvöld.
Blúskvöldin í febrúar og apríl voru einstaklega vel heppnuð og það það stefnir í frábært kvöld núna með frábærtum listamönnum.
Á sviðið stíga hljómsveitirnar Bjorn Thoroddsen Trio, Refill og Singletons, sem færa okkur fjölbreyttan blús í sinni bestu mynd.
Gefðu sófanum frí þetta kvöld og komdu að njóta lifandi tónlistar í góðum félagsskap. Á matseðlinum verða blúsaðir borgarar og kaldur á krana, nákvæmlega eins og það á að vera.
Hljómsveitir kvöldsins
Bjorn Thoroddsen Trio
Bjorn Thoroddsen, gítar
Fúsi Óttars, trommur
Jón Rafns, bassi
Refill
Fúsi Óttars, trommur
Bjarni Sveinbjörnsson, bassi
Sigurgeir Sigmundsson, gítar
Sigurður Sigurðsson, söngur og munnharpa
Singletons
Hannes Birgir Hjálmarsson, söngur og gítar
Gunnar Örn Sigurðsson, gítar
Árni Björnsson, bassi
Steinar Björn Helgason, trommur
Ragnar, hljómborð
Húsið opnar: 19:00
Tónleikar hefjast: 20:00
Miðaverð: 3.900 kr.
Komdu og njóttu kvöldsins með okkur, alvöru blús í lifandi umhverfi.