Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
Bræður ásamt Guðrúnu Gunnars

Bræður ásamt Guðrúnu Gunnars

09/10/2026 20:00
Miðgarður , 560 Varmahlíð, -

Bræðurnir Ingi Sigþór, Róbert Smári og Sveinn Rúnar bjóða til söngskemmtunar í Miðgarði Varmahlíð föstudagskvöldið 9. október kl. 20:00.

Bræðurnir hafa um árabil skemmt Skagfirðingum en koma nú fram í fyrsta skipti saman á eigin tónleikum. Á tónleikunum verða fluttar dægurlagaperlur úr ýmsum áttum, sungnir fallegir íslenskir textar og sagðar sögur.

Hljómsveit undir stjórn Eysteins Ívars Guðbrandssonar leikur undir. Sérstakur gestur þeirra Bræðra verður hin ástsæla Guðrún Gunnarsdóttir, söng- og fjölmiðlakona. Ferill Guðrúnar spannar yfir 40 ár, en hún hefur gefið út sex sólóplötur, þrjár plötur með Friðriki Ómari, sungið inn á fjölda hljómplatna fyrir aðra listamenn og komið fram á ýmsum tónleikum og skemmtunum. Það er okkur sannur heiður að fá Guðrúnu til liðs við okkur.

Viðbúið er að á milli laga verði létt yfir þeim bræðrum þar sem þeir eru ekki þekktir fyrir að taka sjálfa sig alvarlega eða hlífa öðrum. Því verður hægt að versla brjóstbirtu og hjartastyrkjandi á staðnum.

Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikarnir hefjast kl. 20:00.

Söngur:
Ingi Sigþór
Róbert Smári
Sveinn Rúnar

Sérstakur gestur:
Guðrún Gunnars

Hljómsveit:
Eysteinn Ívar Guðbrandsson – hljómsveitarstjórn og hljómborð
Sigvaldi Helgi Gunnarsson – gítarar
Sigfús Arnar Benediktsson – gítarar
Kristján Reynir Kristjánsson – trommur
Jakob Logi Gunnarsson – bassi

Sérstakar þakkir:
Snorri og Sigga í Miðgarði
FISK Seafood
Unnur og félagar á Hótel Varmahlíð
Ómar hjá Midix.is

...og allir hinir sem við gleymdum að telja upp.