NEW EVENT
Djassdúettinn Arnheiður & Gylfi í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal!
20/08/2026 20:00
Kómedíuleikhúsið Haukadal, Svalvogavegur , 471 Dýrafjörður
Fimmtudagskvöldið 20. ágúst verður boðið upp á notalega djassstund í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal.
Arnheiður, söngur, og Gylfi, píanó, hafa spilað saman um nokkurra ára skeið en halda nú í fyrsta sinn sína eigin tónleika.
Á efnisskránni verða lög úr ýmsum áttum, flutt með þeirra eigin blæ – vestfirsk djasslög, söngleikjatónlist og ýmislegt fleira.
Verið hjartanlega velkomin á huggulega síðsumarkvöldstund í Dýrafirði.