Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
Herrakvöld Lionsklúbbs Kópavogs 2026

Herrakvöld Lionsklúbbs Kópavogs 2026

06/11/2026 19:30
Veitingasalur Breiðabliks – Fífan, 2. hæð, Dalsmári 5, 201 Kópavogur

Lionsklúbbur Kópavogs býður til árlegs herrakvölds í Fífunni föstudaginn 6. nóvember. Kvöldið nýtur sífellt meiri vinsælda og er fyrir löngu orðið fastur liður í skemmtanalífi Kópavogsbúa. 

Dagskráin 

  • Veislustjóri: Hinn síungi Gísli Einarsson leiðir gesti í gegnum kvöldið.
  • Skemmtiatriði: Sigga Beinteins og Ingó Veðurguð sjá um stuðið.
  • Heiðursgestur: Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ og fyrrverandi íþróttakappi, þjálfari og heilbrigðisráðherra.
  • Happdrætti og bögglauppboð verða á sínum stað.


Matur og drykkur

Tekið er á móti gestum með hval og snaps við innganginn, og á borðum verður ljúffeng steik að hætti mömmu.

Gott kvöld fyrir gott málefni

Allur ágóði rennur til Eljunnar, sem er nýtt þjónustuúrræði fyrir fólk með nýgreinda heilabilun. Hvað er betra en að sameina gleði og skemmtun og styðja um leið þarft og gott málefni?

Hagnýtar upplýsingar

Hvenær: Föstudaginn 6. nóvember 2026
Húsið opnar: kl. 18:30
Borðhald hefst: kl. 19:30
Hvar: Veitingasalur Breiðabliks, Fífan, 2. hæð, Dalsmári 5, 201 Kópavogur
Miðaverð: 14.000 kr.
Aldurstakmark: 18 ára

Takmarkað magn miða er í boði, svo tryggðu þér sæti í tíma.