Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
Khemeia – heillandi tónleikar í Edinborgarhúsinu

Khemeia – heillandi tónleikar í Edinborgarhúsinu

28/11/2025 20:30
Edinborgarhúsið, Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður

Khemeia – heillandi tónleikar í Bryggjusal Edinborgarhússins

Khemeia er nýtt og spennandi dúó þar sem íslenski gítarleikarinn Mikael Máni og ítalska söngkonan Aurora Machese leiða saman krafta sína og skapa einstakan hljóðheim. Tónlist þeirra er í grunninn einföld – gítar og rödd – en úr verður mildi og töfrandi blanda þar sem kaldir íslenskir litir mætast við hlýjan andblæ Miðjarðarhafsins. Í lok nóvember kemur út fyrsta plata dúósins.

Lögin fjalla um það sem gerir lífið þess virði að lifa: ást, vináttu, minningar og uppvaxtarár. Á tónleikunum flytja þau bæði frumsamin verk og ítölsk lög í sínum sérstöku túlkunum. Aurora, sem býr í Amsterdam, hefur tileinkað sér margbreytilega tónlist frá klassík til jazz, á meðan Mikael – handhafi Íslensku tónlistarverðlaunanna 2023 fyrir jazzplötu ársins – hefur starfað með mörgum af fremstu tónlistarmönnum Evrópu.

Saman mynda þau óvænta en ómótstæðilega samsetningu – tónlist sem er bæði ný og kunnugleg, hugljúf og djörf.

Föstudagur 28. nóvember kl. 20:30
Staður: Bryggjusalur, Edinborgarhúsið
Miðaverð: 3.500 kr.