Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
MEIK og Ari Eldjárn

MEIK og Ari Eldjárn

27/03/2026 20:00
Ölver Sportbar, Álfheimar 74, 104 Reykjavík

YOU WANTED THE BEST AND YOU GOT THE NÆSTBEST – MEIK!!! 

KISS-heiðurshljómsveitin MEIK snýr aftur á svið eftir átta ára hlé og heldur kraftmikla tónleika á Ölveri föstudagskvöldið 27. mars 2026

Á efnisskránni verða eingöngu lög með rokkgoðsögnunum í KISS, með sérstakri áherslu á okkar allra besta Ace Frehley. Það má því búast við sannkallaðri rokkveislu fyrir alla KISS-aðdáendur. 

Allir meðlimir MEIK hafa einhvern tímann á lífsleiðinni verið forfallnir aðdáendur þessarar einstöku rokksveitar – og sumir eru enn með háan KISS-hita. 

Sérstakur gestur kvöldsins er Ari Eldjárn, gallharður KISS-aðdáandi frá unga aldri, sem stígur á svið með hljómsveitinni. 

MEIK hefur einnig fengið lof úr óvæntri átt, en Bruce Kulick, fyrrum gítarleikari KISS, lýsti meðlimum sveitarinnar í viðtali sem “the most talented group of musicians I have ever played with.” 

Meðlimir MEIK eru: 

  • Magni Ásgeirsson – söngur
  • Þráinn Árni Baldvinsson – gítar
  • Jón Elvar Hafsteinsson – gítar
  • Eiður Arnarsson – bassi
  • Þorsteinn Gunnarsson – trommur


Sérstakur gestur:
Ari Eldjárn – gítar og söngur

📍 Staður: Ölver
📅 Dagsetning: Föstudagur 27. mars 2026
🕖 Húsið opnar: 19:00
🎸 Tónleikar hefjast: 20:00
 
Ekki missa af kvöldi fullum af klassískum KISS-lögum, krafti og hreinni rokkstemningu.