
Skjöldur Karlaráðstefna
Karlaráðstefnan Skjöldur – Vestmannaeyjar 11. október
Karlaráðstefnan Skjöldur verður haldin í annað sinn í Vestmannaeyjum laugardaginn 11. október. Fyrsta ráðstefnan hlaut frábærar viðtökur og nú bjóðum við upp á enn einn einstakan viðburð fyrir karlmenn á öllum aldri.
Við ætlum að verja deginum saman með áhugaverðum erindum, góðum félagsskap og fjölbreyttri dagskrá sem styrkir bæði líkama og sál. Skjöldur er tilvalinn fyrir vinnustaði, vini, feðga, bræður, frændur – eða hvern þann karlmann sem vill gera sér glaðan dag í Eyjum.
📍 Sagnheimar, 11. október kl. 14:00 – 18:00
Á ráðstefnunni verður boðið upp á léttar veitingar í mat og drykk.
🍺 Smakkupplifun á Brothers Brewery, kl. 18:00 – 19:30
Eftir ráðstefnuna heldur dagskráin áfram með skemmtilegri smakkupplifun.
🍽️ Kvöldverður og kvöldskemmtun, kl. 19:30
Kvöldverður að hætti Gott verður í Golfskálanum, ásamt léttum tónlistaratriðum og gleði.
Allir þátttakendur fá einnig fallega gjöf.
💰 Verð: 24.900 kr.
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna: HÉR
Við hlökkum til að fagna með ykkur í Vestmannaeyjum!