Stormsveitin rafmagnslaus í Eyvindartungu
Stormsveitin í Eyvindartungu – söngur, sögur og hugguleg kvöldstund
Stormsveitin mætir í Eyvindartungu í glaðlegum gír með söng, sögur og almenn huggulegheit. Lagavalið samanstendur af uppáhalds lögum kórmanna þar sem fallegar útsetningar fá að njóta sín til fulls við undirleik Pálma Sigurhjartar og Arnórs Sigurðarsonar.
Efnisskráin samanstendur af dægurlögum og þjóðlegum lögum frá síðustu 50 árum, fluttum í glæsilegum kórútsetningum þar sem röddun fær að njóta sín. Einnig stíga kórmenn fram hver af öðrum og syngja einsöng við bakraddir kórsins.
Kórinn samanstendur af 14 mönnum sem syngja í fjórum röddum, líkt og í hefðbundnum karlakór.
Upplýsingar um viðburð
Húsið opnar: 20:00
Viðburður hefst: 20:30
Dagsetning: 30. apríl 2026
Staðsetning: Eyvindartunga, Laugarvatni
Takmarkað magn miða í boði.