Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
ÞAU í Kómedíuleikhúsinu

ÞAU í Kómedíuleikhúsinu

05/04/2026 15:00
Kómedíuleikhúsið Haukadal, Svalvogavegur , 471 Dýrafjörður

ÞAU spila á Vestfjörðum um páskana!
Hvar verður þú? 

Á páskadag halda ÞAU hátíðartónleika í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal – einstök stund þar sem sveitin flytur frumsamda íslenska tónlist við fallega ljóðatexta frá Vestfjörðum, Norðurlandi og Suðurlandi. 

ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk Björnsdóttir og gítar- og trommuleikarinn Garðar Borgþórsson. Grófur gítarleikur Gadda mætir tærri og tilfinningaríkri rödd Rakelar í frumsaminni íslenskri tónlist þar sem íslensk ljóð eru í forgrunni. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim á sviði þar sem aðeins tveir tónlistarmenn fylla salinn af tónlist. 

ÞAU hafa gefið út plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland og fylgt þeim eftir með vinsælum sumartónleikaröðum um Vestfirði og Norðurland. Sveitin kemur reglulega fram yfir vetrarmánuðina og hefur einnig staðið fyrir stærri tónleikum á stöðum eins og Bæjarbíói og Hofi. 

Þriðja plata sveitarinnar, ÞAU taka Suðurland, er væntanleg síðar á árinu – og á páskatónleikunum í Kómedíuleikhúsinu gæti jafnvel heyrst brot af nýju efni. 

ÞAU hlakka til að sjá þig! 

Takmarkaður miðafjöldi – tryggðu þér miða tímanlega.
Einnig verður hægt að kaupa miða við hurð.