Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
Tom Waits - enn 75 ára - sönglagaskemmtun

Tom Waits - enn 75 ára - sönglagaskemmtun

20/09/2025 20:30
Edinborgarhúsið, Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður

Tom Waits – 75 ára afmælistónleikar í Edinborgarhúsinu á Ísafirði

Ólíkindatólið Tom Waits varð 75 ára síðasta haust og af því tilefni voru haldnir tónleikar honum til heiðurs – sem tókust svo glimrandi vel að hljómsveitin ákvað, eftir ótal áskoranir, að endurtaka leikinn.

Það tók nokkra stund að ná (næstum) öllum hljóðfæraflokknum aftur saman, en hafðist þó að lokum – með viðbótum. Nú stendur til að telja í þann 20. september næstkomandi kl. 20:30 í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.

Sem fyrr verða leikin lög úr öllum ferli Waits – flest þeirra sem heyrðust síðast, en þó ekki öll – ásamt nokkrum nýjum. Búast má við ferðalagi um ótrúlega fjölbreyttan hljóðheim hans, sem spannar allt frá utangarðsmannablús yfir í suðræna dansmúsík, frá hátimbraðri leikhúsmúsík yfir í fönkskotið industrial noise, frá syngjandi sveiflum yfir í rómantískar píanóballöður – og allt þar á milli.

Fram koma (a.m.k.!):

  • Skúli mennski (gítar, söngur, bassi)
  • Sara Hrund Signýjar (píanó, söngur, slagverk)
  • Stefán Freyr Baldursson (gítar)
  • Baldur Páll Hólmgeirsson (slagverk)
  • Gosi – Andri Pétur Þrastarson (gítar, söngur)
  • Tinna Ólafsdóttir (bassi, fiðla, söngur)
  • Kristinn Gauti Einarsson (trommur, slagverk)
  • Eiríkur Örn Norðdahl (bassi, kontrabassi, dobró, söngur)
  • Tómas Ragnarsson (söngur, munnharpa)
  • Arnheiður Steinþórsdóttir (söngur)
  • Skúli Hakim-Mechiat (söngur)