Tónleikar Sønderborg Gospel Choir og Kórs Lindakirkju
Gospel tónleikar í Lindakirkju
Lindakirkja opnar dyr sínar fyrir einstaka tónlistarupplifun föstudaginn 29. maí 2026 kl. 20:00, þegar danski kórinn Sønderborg Gospel Choir og Kór Lindakirkju sameina krafta sína á stórkostlegum tónleikum.
Sønderborg Gospel Choir er blandaður kór með um 35 söngvurum sem flytja kraftmikla gospel tónlist undir stjórn Johanna Løhde Nielsen í Sønderborg í Danmörku. Athygli vekur að þrír Íslendingar syngja með kórnum. Kórinn er þekktur fyrir að hrífa áhorfendur með gleði, nærveru og mikilli orku.
Johanna hefur stýrt kórnum frá árinu 2017 og er menntuð rytmísk söngkona og kórstjóri frá Konunglega tónlistarakademían á Jótlandi.
Á efnisskránni eru vinsæl gospelverk, þar á meðal:
✨ Come Into This House eftir Gary Oliver
✨ Imagine Me eftir Kirk Franklin
✨ Total Praise eftir Richard Smallwood
Kór Lindakirkju gegnir mikilvægu hlutverki í tónlistarlífi safnaðarins og leiðir söng við guðsþjónustur og viðburði. Kórinn samanstendur af fólki á öllum aldri sem nýtur þess að syngja og taka þátt í lifandi safnaðarstarfi. Tónlistarstjóri kirkjunnar og kórstjóri er Óskar Einarsson.
🎤 Saman munu þessir tveir kórar skapa einstaka og innilega tónlistarupplifun sem verður aðeins flutt þetta eina kvöld.
📍 Staður: Lindakirkja
🕗 Tími: Föstudagur 29. maí 2026 kl. 20:00
🎟️ Miðaverð: 3.900 kr
👉 Sjá nánar hér: https://www.facebook.com/events/2327086144367788